• Sönglög

5. feb, 2022

Ítalska söngvabókin

24 sönglög eftir Þorvald Gylfason við ljóð eftir Kristján Hreinsson í ítalskri þýðingu Olgu Clausen


Ítalska söngvabókin (Il canzoniere italiano) er safn 24ra sönglaga eftir Þorvald Gylfason prófessor við ljóð eftir Kristján Hreinsson skáld og heimspeking í ítalskri þýðingu Olgu Clausen, aðalræðismanns Íslands í Mílanó. Lögin eru sótt í fyrri flokka þeirra Þorvalds og Kristjáns – Heimspeki hjartans, Svífandi fuglar, Sextán söngvar fyrir sópran og tenór og Sumarferðin – og heyrast nú flutt á ítölsku í fyrsta sinn. Þórir Baldursson tónskáld hefur útsett átta laganna.

Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran og Sigurður Helgi Oddsson píanó frumfluttu ljóðaflokkinn í Hannesarholti 14. og 15. maí 2022 og fluttu hann síðan aftur á þrem stöðum við Gardavatn á Norður-Ítalíu: Bardolino 25. maí, Desenzano 27. maí og Riva del Garda 28. maí. Skáldið flutti stuttar skýringar á undan hverju lagi og ljóði. Nótnabók með lögunum og ljóðunum lá fyrir til sýnis og sölu á tónleikunum. Kvikmynd um tónleikaferðina kringum Gardavatn var frumsýnd á sænsku menningarsjónvarpsstöðinni Axess TV 5. nóvember 2024 og síðan sýnd á kvikmyndahátíðinni Catalogo Premio Felix 2024 7˚ edizione 27.-29. nóvember 2024.

EFNISSKRÁ

Un capitolo (Einn kafli)*
(Sibelius)

Stai con me (Vertu hjá mér)**
(Sibelius)

Il mio passerotto canta (Sólskríkjan mín syngur)*
(Sibelius)

La musica del cuore (Tónlist hjartans)**
(Sibelius)

Un angelo ti proteggerà (Fagur engill fylgir þér)**
(Sibelius)

La volontà del vento (Vilji vindsins)**
(Sibelius)

Sorriso (Bros)**
(Sibelius)

Il sonetto dell‘amore (Unaðsreitasonnettan)***
(Sibelius)

L‘umiltà (Lágstemmdar línur)**
(Sibelius)

La ricompensa della vita (Laun lífsins)****
(Sibelius)

Barlume di speranza (Vonarglæta)**
(Sibelius)

Alla finestra di notte (Við glugga um nótt)**
(Sibelius)

Preghiere silenziose (Hljóðar bænir)****
(Sibelius)

La tua nuova immagine (Ný mynd af þér)****
(Sibelius)

Finche’ viva la poesia (Þegar ljóðið lifir)**
(Sibelius)

L’arpa del cuore (Harpa hjartans)****
(Sibelius)

Il fiore della vita (Lífsblóm)**
(Sibelius)

Il sonetto di Sören Kierkegaard (Kirkjugarðssonnettan)***
(Sibelius)

Il sonetto di Leibniz (Leibnizsonnettan)***
(Sibelius)

Il ricordo degli uccelli (Fuglar minninga)*
(Sibelius)

La canzone del cuore (Hjartalag)****
(Sibelius)

La danza delle farfalle (Dans fiðrildanna)****
(Sibelius)

Canto per te (Ég syng fyrir þig)*
(Sibelius)

La colomba della pace (Friðardúfan)***
(Sibelius)

___________

* Úr Söngvar um svífandi fugla.
** Úr Sextán söngvar fyrir sópran og tenór.
*** Úr Sautján sonnettur um heimspeki hjartans.
**** Úr Sumarferðin.

 

VERTU HJÁ MÉR

Vertu hjá mér vinur
því vært nú sofa fjöllin
á meðan stormur stynur
og stækkar vetrarhöllin.

Við skynjum kaldan klaka
og kyrrð er vötnin frjósa,
um stund við viljum vaka
í veröld norðurljósa.

Við eigum ósk sem hylur
ísköld klakabrynja
þegar þungur bylur
þarf sinn harm að skynja.

Er vetrarhöllin hrynur
þá hlýnar okkur báðum,
já, vertu hjá mér vinur
því vorið kemur bráðum.

 

STAI CON ME

Stai con me amico
che dorme la montagna
la bufera si scatena
l‘inverno c‘accompanga.

Gelido è il ghiaccio
le acque in malora
vorrei un tuo abbraccio
e guardare la aurora.

Abbiam‘ un desiderio
che copre l‘armatura
il vento refrigerio
dentro queste mura.

Quando il ghiaccio crolla
l‘aria si fa estiva
si, stai con me amico
la primaver’arriva.

In italiano

Samstarfsaðilar

Þorvaldur Gylfason

Höfundur

Þorvaldur Gylfason hefur samið rösklega100 sönglög, m.a. Sautján sonnettur um heimspeki hjartans, Söngva um svífandi fugla og Sjö sálma við kvæði Kristjáns Hreinssonar og Fimm árstíðir við kvæði Snorra Hjartarsonar. Sonnetturnar voru frumfluttar í Hörpu 2012 og 2013, fuglasöngvarnir í Salnum í Kópavogi og Bergi á Dalvík 2014 og á RÚV 2020, sálmarnir í Langholtskirkju 2014 og í Guðríðarkirkju 2015 og Fimm árstíðir í Hannesarholti 2017.

Kristján Hreinsson

Höfundur

Kristján Hreinsson er skáld, tónskáld, söngvari og heimspekingur. Eftir hann liggja um 60 bækur, nú síðast m.a. ljóðabækurnar Verði ljóð (2015), Ég sendi þér engil (2016), Skáld eru skrýtnir fuglar (2016), Koddaljóð (2017), Vinaljóð (2018), Dagatal (2019), Fimmtíu ljóð um fegurð (2019) og Mótmæli (2020) auk skáldsagna og hljómdiska þar sem hann flytur eigin lög og ljóð.

Berta Dröfn Ómarsdóttir

Söngkona

Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran lauk mastersnámi í söng með láði frá Conservatorio Monteverdi í Bolzano á Ítalíu eftir burtfararpróf frá Söngskólanum í Reykjavík. Hún hefur átt litríkan söngferil og komið víða við, svo sem á Gala-tónleikum í Carnegie Hall í New York; í höll í Montepulciano í Toscana-héraðinu á Ítalíu; í kastala í litlu fjallaþorpi við ítölsku Alpana og í óperu-uppsetningum með sinfóníuhljómsveitinni í Bolzano. Hún syngur reglulega á Ítalíu meðfram söng og kórstjórn á Íslandi.

Sigurður Helgi Oddsson

Píanóleikari

Sigurður Helgi Oddsson lauk burtfararprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum á Akureyri vorið 2004 og BM gráðu summa cum laude frá Berklee College of Music í Boston 2011 þar sem hann lagði stund á djasspíanóleik, hljómsveitarstjórn og kvikmyndatónsmíðar. Hann starfar sem píanóleikari og -kennari við Söngskólann í Reykjavík.

Olga Clausen

Þýðandi

Olga Clausen, aðalræðismaður Íslands í Mílanó, er ljóðaunnandi, hefur búið lengi á Ítalíu og þreytir hér frumraun sína sem ljóðaþýðandi.