• Sönglög

7. sep, 2014

Söngvar um svífandi fugla

Lagabálkur eftir Þorvald Gylfason við ljóð eftir Kristján Hreinsson


Söngvar um svífandi fugla eru fjórtán sönglög eftir Þorvald Gylfason prófessor við ljóð eftir Kristján Hreinsson skáld og heimspeking. Lögin eru samin fyrir söngrödd, píanó og selló, og hefur Þórir Baldursson tónskáld útsett þau. Ljóðin og lögin eru óður til lífsins með tæran boðskap um fegurð heimsins og himinsins að leiðarljósi. Fimmtándi fuglasöngurinn, Sólskríkjan mín syngur, hefur nýlega bætzt í flokkinn. Lögin, þ.e. nóturnar, og kvæðin, einnig í enskri þýðingu, birtust á bók 2020. Kristinn Sigmundsson bassi, Bryndís Halla Gylfadóttir selló og Jónas Ingimundarson píanó frumfluttu ljóðaflokkinn fyrir fullu húsi í Salnum í Kópavogi 7. september 2014 og aftur 14. september og síðan í Bergi á Dalvík 21. september. Skáldið flutti skýringar á undan hverju lagi og ljóði sem var varpað á vegg á bak við sviðið. Kvikmyndafélagið Í einni sæng tók tónleikana upp fyrir sjónvarp. Myndin var sýnd í ríkissjónvarpinu 16. marz 2020 og aftur 22. marz. Lokalagið Einn kafli var síðasta lag fyrir fréttir ríkisútvarpsins 6. nóvember 2019, sjá myndband að neðan.

Umsögn Bryndísar Schram á visir.is um tónleikana í Salnum 7. september 2014.

EFNISSKRÁ

1.   Í köldu myrkri
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

2.   Unaðsreiturinn
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

3.   Vorið brosir
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

4.   Erlan
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

5.   Vegur þagnar
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

6.   Í faðmi fugla
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

7.   Grátur Jarðar
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

8.   Fuglshjartað
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

9.   Dúfa
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

10. Vals
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

11. Sólskríkjan mín syngur (Hefur ekki enn verið flutt.)
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

12. Spegill fuglanna
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

13. Fuglar minninga
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

14. Ég syng fyrir þig
Christine Antenbring messósópran og Mikhail Hallak pianóleikari fluttu lagið á íslenzkum ljóðatónleikum í Hörpu á Menningarnótt 24. ágúst 2013 og aftur á íslenzkum og argentínskum ljóðatónleikum í Lutheran Church í Winnipeg 18. maí 2014 og enn á íslenzkum, argentínskum og úkraínskum ljóðatónleikum í Chapel Restoration í Cold Spring, New York, 18. október 2015, nú ásamt Rachel Evans lágfiðluleikara. Sjá viðtal við Christine hér. Heyr hana syngja lagið hér.
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

15. Einn kafli
Síðasta lag fyrir fréttir ríkisútvarpsins 6. nóvember 2019.
Bassi, píanó og selló, Messósópran, píanó og lágfiðla, PDF

 

FUGLAR MINNINGA

Að kvöldi dags, við hafið á meðan sólin sest
og sælubros af heitum vörum skín,
hér sit ég einn að hausti og finn að birtan best
fer blíðlega um djúpu augun mín.

Í huga sé ég fugla sem fóru grein af grein
er gleðitár af vanga mínum rann,
og söngurinn sem lifði, er orðinn minning ein;
sá unaður sem glaður hugur fann.

Í hljóðri kyrrð með tíma ég fæ að fylgja þeim,
já, fuglunum sem áður sá ég hér.
Svo svíf ég út á hafið með dýrð um draumaheim
og dásemd lífsins vakir yfir mér.

Samstarfsaðilar

Þorvaldur Gylfason

Höfundur

Þorvaldur Gylfason hefur samið um 100 sönglög, m.a. Sautján sonnettur um heimspeki hjartans og Sjö sálma við kvæði Kristjáns Hreinssonar og Fimm árstíðir við kvæði Snorra Hjartarsonar. Sonnetturnar voru fluttar í Hörpu 2012 og 2013, sálmarnir í Langholtskirkju 2014 og í Guðríðarkirkju 2015 og Fimm árstíðir í Hannesarholti 2017.

Kristján Hreinsson

Höfundur

Kristján Hreinsson er skáld, tónskáld, söngvari og heimspekingur. Eftir hann liggja bráðum 40 bækur, nú síðast Verði ljóð (2015), Ég sendi þér engil (2016), Skáld eru skrýtnir fuglar (2016) og Koddaljóð (2017), auk fjölda hljómdiska.

Kristján Hreinsson

Kristinn Sigmundsson

Söngvari

Kristinn Sigmundsson bassi stendur á hátindi ferils síns sem óperusöngvari og ljóðatúlkandi í fremstu röð á heimsvísu.

Jónas Ingimundarson

Píanóleikari

Jónas Ingimundarson píanóleikari hefur leikið inn á tugi hljómdiska og leikið með flestum helztu ljóðasöngvurum landsins s.l. 50 ár.

Þórir Baldursson

Tónskáld

Þórir Baldursson tónskáld hefur verið í hópi ástsælustu músíkanta landsins í meira en hálfa öld.

Bryndís Halla Gylfadóttir

Sellóleikari

Bryndís Halla Gylfadóttir hefur verið fyrsti sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá 1990.

Vignir Jóhannsson

Myndlistarmaður

Vignir Jóhannsson myndlistarmaður gerði bakgrunna glærusýningarinnar, sem fylgir söngnum og hljóðfæraleiknum á tónleikunum.