• Sönglög

22. feb, 2022

Sumarferðin

Við kvæði eftir Kristján Hreinsson


Sumarferðin er nýr sönglagaflokkur eftir Þorvald Gylfason prófessor við kvæði eftir Kristján Hreinsson skáld og heimspeking. Lögin eru samin fyrir sópran, tenór og píanó. Ljóðin og lögin fjalla um söknuð, sorg og gleði, viljann og vonina, ástina, lífið og listina. Flokkurinn er framhald fyrri flokks, Sextán söngvar fyrir sópran og tenór frá 2017. Báðir flokkarnir voru gefnir út 2023 á diskum og bók undir yfirskriftinni Íslenska söngvabókin.

Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Elmar Gilbertsson tenór og Snorri Sigfús Birgisson píanó frumfluttu Sumarferðina í Norðurljósum í Hörpu 27. nóvember Reykjavík 2022. Skáldið flutti stuttar skýringar á undan hverju lagi og ljóði sem var varpað á vegg á bak við sviðið.

EFNISSKRÁ

  1. Að lifa er að gefa (Sibelius)
  2. Augnablikin læðast (Sibelius)
  3. Baðmurinn blíði (Sibelius)
  4. Dans fiðrildanna (Sibelius)
  5. Einn tónn (Sibelius)
  6. Einsemdin opnar gáttir (Sibelius)
  7. Fótspor á farvegi tímans (Sibelius)
  8. Garður gæskunnar (Sibelius)
  9. Harpa hjartans (Sibelius)
  10. Hjartað (Sibelius)
  11. Hjartalag (Sibelius)
  12. Hljóðar bænir (Sibelius)
  13. Jökullinn (Sibelius)
  14. Laun lífsins (Sibelius)
  15. Ljóðið um veginn (Sibelius)
  16. Ný mynd af þér (Sibelius)
  17. Orðspor (Sibelius)
  18. Ritstjóri ljóðviljans (Sibelius)
  19. Þá veistu það (Sibelius)
  20. Þrá (Sibelius)
  21. Þrjár spurningar (Sibelius)

 

Þorvaldur Gylfason hefur samið um 140 sönglög, m.a. Sautján sonnettur um heimspeki hjartans, Söngva um svífandi fugla, Sjö sálma og Sextán söngva fyrir sópran og tenór við kvæði Kristjáns Hreinssonar. Sonnetturnar voru fluttar í Hörpu 2012 og 2013, Fuglasöngvarnir í Salnum í Kópavogi 2014 og ríkissjónvarpinu 2020 og 2021, sálmarnir í Langholtskirkju 2014 og Guðríðarkirkju 2015 og Sextán söngvar í Hannesarholti 2017. Eftir Þorvald liggja einnig Fimm árstíðir við kvæði Snorra Hjartarsonar og voru þær frumfluttar í Hannesarholti 2017 og ríkissjónvarpinu 2021.

Kristján Hreinsson er skáld og heimspekingur. Hann hefur birt bráðum 80 bækur, m.a. ljóðabækurnar Vinaljóð (2018), Dagatal (2019), Fimmtíu ljóð um fegurð (2019) og Mótmæli (2020) og skáldsagan Lökin í golunni (2021) auk tíu annarra skáldsagna og hljómdiska þar sem hann flytur eigin lög og ljóð.

Hallveig Rúnarsdóttir hefur sungið mörg óperuhlutverk á sviði, m.a. í Íslensku óperunni, og einnig erlendis og komið fram sem einsöngvari með hljómsveitum, m.a. oft með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Undanfarin ár hefur hún einnig lagt rækt við ljóðasöng og haldið tónleika með þýzkum, frönskum og norrænum sönglögum. Á geisladiskinum Í ást sólar flytur hún íslenzk sönglög ásamt Árna Heimi Ingólfssyni píanóleikara. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2013 og 2018 sem söngkona ársins í sígildri- og samtímatónlist og hlaut einnig tilnefningu til sömu verðlauna 2014, 2016 og 2020. Hún var einnig tilnefnd til Grímuverðlauna sem söngvari ársins árin 2014 og 2017.

Elmar Gilbertsson hefur sungið mörg óperuhlutverk á sviði innan lands og utan, einkum í Hollandi og Belgíu og einnig í Frakklandi, Þýzkalandi og víðar. Hann hlaut Grímuverðlaunin 2014 sem söngvari ársins fyrir hlutverk Daða Halldórssonar í óperunni Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson í Íslensku óperunni og aftur 2016 fyrir hlutverk Don Ottavio í Don Giovanni eftir Mozart. Elmar hlaut einnig Íslensku tónlistarverðlaunin 2014 sem söngvari ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistarog samtímatónlistar og aftur 2017 fyrir hlutverk Lenskís í Évgení Ónegin eftir Tsjækovskí í Íslensku óperunni.

Snorri Sigfús Birgisson stendur í fremstu röð íslenzkra píanóleikara og er jafnframt mikilvirkt tónskáld. Eftir hann liggur fjöldi tónverka: einleiksverk, kammertónlist, raftónlist, kórtónlist, sinfónísk verk og sönglög. Tónlist hans er að finna á fjölmörgum geisladiskum og hljómplötum. Hann gekk frá lagaflokkinum — öllum lögunum nema einu — í hendur söngvaranna tveggja.

Samstarfsaðilar

Ísalög og Polarfonia Classics

Úgefandi

Íslenska söngvabókin með þessum lögum Sumarferðarinnar, 21 talsins, Sextán söngvum fyrir sópran og tenór og tveim lögum enn kom út á prenti 2023 og einnig á geisladiskum, 39 lög alls. Hægt er að eignast söngvabókina ýmist í veglegri öskju með báðum nótnabókunum og tveim geisladiskum frá Ísalögum, vandaðri möppu með tveim geisladiskum ásamt 100 bls. bók frá Polarfonia Classics eða með því að skella sér bara á nótnabækurnar tvær saman eða sitt í hvoru lagi. Öskjurnar og bækurnar fást í Tónastöðinni, Eymundsen og Forlaginu og diskarnir í 12 tónum.