Ísalög
9. feb, 2022

Ítalska söngvabókin

Ítalska söngvabókin (Il canzoniere italiano) er safn 24ra sönglaga eftir Þorvald Gylfason prófessor við ljóð eftir Kristján Hreinsson skáld og heimspeking í ítalskri þýðingu Olgu Clausen, aðalræðismanns Íslands í Mílanó. Lögin eru öll nema sex sótt í fyrri flokka þeirra Þorvalds og Kristjáns – Heimspeki hjartans, Svífandi fuglar og Sextán söngvar fyrir sópran og tenór og og sex í nýjan flokk, Fleiri söngvar – og heyrast nú flutt á ítölsku í fyrsta sinn. Þórir Baldursson tónskáld hefur útsett átta laganna. Berta Dröfn Ómarsdóttir sópran og Sigurður Helgi Oddsson píanó frumfluttu ljóðaflokkinn í Reykjavík 14. og 15. maí 2022 og skömmu síðar einnig á þrem stöðum á Norður-Ítalíu, í Bardolino 25. maí, Desenzano 27. maí og Riva del Garda 28. maí 2022.

Kápuhönnun og mynd:
Jón Kristinn Cortez og Vignir Jóhannsson.
Útgefandi: Ísalög, Reykjavík, 2022.