• Kórverk

1. jan, 2016

Tíu söngvar handa kvennakór

Við kvæði Kristjáns Hreinssonar


Kvennakór Háskóla Íslands undir stjórn Margrétar Bóasdóttur frumflutti fjögur lög flokksins (Viskuástarsonnettan, Vorið brosir, Grátur Jarðar og Einn kafli) á vortónleikum kórsins í hátíðarsal Háskóla Íslands 1. maí 2016. Kórinn frumflutti tvö lög enn (Cartesíusarsonnettan og Sókratesarsonnettan) á sama stað 18. maí 2019.

Öll lögin nema eitt hafa áður verið flutt sem einsöngslög eða tvísöngs sem hlutar af lagaflokkunum Sautján sonnettur um heimspeki hjartans eða Söngvar um svífandi fugla. Ný er Viskuástarsonnettan, samin í minningu heimspekinganna Páls Skúlasonar og Þorsteins Gylfasonar.

Hildigunnur Rúnarsdóttir raddsetti lögin handa kvennakórnum og ýmist hörpuleikara eða píanóleikara.

Sjá kórlögin ásamt hljóðskjölum hér.

1. Leibnizsonnettan

2. Cartesíusarsonnettan

3. Nietzschesonnettan

4. Sókratesarsonnettan

5. Viskuástarsonnettan

6. Vorið brosir

7. Grátur Jarðar

8. Spegill fuglanna

9. Fuglar minninga

10. Einn kafli