16. jan, 2020

Þrír risar og eitt land enn

Hér sjáum við mat Alþjóðabankans á þróun landsframleiðslu á kaupmáttarkvarða á Indlandi og í Kína borið saman við Bandaríkin og Rússland 1990-2018.
Hver kúrfa sýnir hlutdeild viðkomandi lands í samanlagðri heimsframleiðslu.
Fernt vekur mesta athygli.
1. Hlutdeild Bandaríkjanna í heimsframleiðslu hefur frá aldamótum dregizt saman úr 20% í 15%.
2. Kína fór fór fram úr Bandaríkjunum 2013 og er nú stærsta hagkerfi heims á þennan kvarða.
3. Indland fór fram úr Rússlandi 1994 og aflar nú sínu fólki 2,5 sinnum meiri tekna en Rússland.
4. Landsframleiðsla Rússlands er bara fimmtungur af landsframleiðslu Bandaríkjanna og 3% af landsframleiðslu heimsins alls.

Heimildir: Alþjóðabankinn, World Development Indicators 2020.