Stöndum saman
Ég þurfti ekki að “kíkja í pakkann” áður en við gengum í SÞ 1946, ekki vegna þess að ég var ekki fæddur þá, heldur vegna hins að SÞ eru félagsskapur sem ég tel rétt af pólitískum ástæðum að Ísland sé í hvað sem kostum og göllum líður. Ég lít ESB svipuðum augum. Þar eru allir okkar nánustu vinir og vandamenn í Evrópu nema Norðmenn (og Bretar sem dauðsjá nú margir eftir að hafa látið ginna sig út 2016). Öll 27 aðildarlöndin una sér vel í ESB (72% svarenda, sjá mynd). Þar eigum við því heima líka hvað sem kostum og göllum líður. Ég met kostina og gallana að vísu svo að kostirnir vegi mun þyngra en gallarnir, en það er ekki aðalatriðið í mínum huga heldur hitt, að við eigum samleið með Evrópu, langa samleið, einkum nú þegar heimsmálin hafa riðlazt svo að Bandaríkjastjórn hefur í hótunum við Grænland og Nató.
Við þessar nýju kringumstæður tel ég að við þurfum að þétta raðirnar og ganga inn í ESB með evrunni og öllu saman sem fyrst (og Norðmenn líka), ekki bara til að hagnast á því heldur einnig til að gera gagn. Sælla er að gefa en þiggja.

Hér eru staðbundnir formálar mínir að textanum að framan:
- Bæjarins bestu
- Feykir
- Skessuhorn
- Sunnlenska
- Vikublaðið
- Víkurfréttir