9. sep, 2019

Kína rís

(Hlutdeild í heimsframleiðslu á kaupmáttarkvarða 1990-2017)

Þetta er ein af þessum myndum sem segja meira en mörg orð. Hlutdeild Kínverja í heimsframleiðslunni var 6% 1995 og er nú komin upp í 18% sem gerir þreföldun á minna en aldarfjórðungi. Frá 1990 hefur hlutdeild ESB minnkað úr 25% í 16% til að rýma fyrir Kína, hlutdeild Bandaríkjanna úr 19% í 15% og hlutdeild Rússlands úr 6,4% í 3,6%. Hlutdeild Indlands hefur á sama tíma aukizt úr 3,4% í 7,4%. Takið eftir þessu: Kína sigldi fram úr Bandaríkjunum 2013 og fram úr ESB 2014. Framleiðsla á mann er eftir sem áður miklu minni í Kína en í Bandaríkjunum, ESB og Rússlandi, en sigldi fram úr Brasilíu 2016 (sést ekki á myndinni). Heimild: Alþjóðabankinn,World Development Indicators.