DV
5. des, 2011

Hvað er íslenzk menning?

Menning er að gera hlutina vel, sagði bróðir minn, Þorsteinn Gylfason prófessor. Eftir skilgreiningu hans kynni íslenzk menning að virðast standa höllum fæti, því svo rammt kveður að fúskinu, sem einkennir ýmsa þætti þjóðlífsins. Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis frá 2010 lýsir vandanum vel. Skýrslan lýsir opinberri stjórnsýslu, þar sem varla stendur steinn yfir steini. Einn þriggja nefndarmanna sagðist í sjónvarpi hafa verið gráti næst við gerð skýrslunnar. Skýrsla RNA og aðrir vitnisburðir lýsa stjórnmála- og viðskiptalífi, sem er morandi í spillingu. Byggingabransinn er kapítuli út af fyrir sig eins og margir vonsviknir húsbyggjendur hafa vitnað um fyrir rétti. Ég gæti haldið áfram.

En bíðum við. Þjóðlífið snýst ekki bara um stjórnsýslu, byggingar og viðskipti. Í mörgum öðrum greinum gera margir Íslendingar hlutina vel, meira að segja mjög vel á heimsvísu. Tökum sinfóníuhljómsveitina. Þar fær enginn hljóðfæraleikari stöðu, nema hann eða hún hafi staðizt blint próf. Hljóðfæraleikararnir eru látnir spila á bak við tjald, svo að valnefndin sjái þá ekki. Þetta er gert til að girða fyrir klíkuskap. Álitlegur hluti hljóðfæraleikaranna er útlendingar. Enginn spyr um flokksskírteini.

Söngskólinn í Reykjavík er annað dæmi (játning: ég sit þar í stjórn). Söngskólinn hefur frá öndverðu haft náið samstarf við Konunglegu tónlistarskólana í Bretlandi „The Associated Board of the Royal Schools of Music”. Öll lokapróf frá skólanum hafa verið tekin í samvinnu við ABRSM, prófdómarar þaðan hafa dæmt prófin og nemendur hlotið prófskírteini, sem njóta alþjóðlegrar viðurkenningar. Tónlistarskólarnir um landið hafa á heildina litið tekið stakkaskiptum. Fyrir hálfri öld voru þúsund nemendur skráðir í tónlistarskóla, og nú er fjöldi skráðra nemenda um fimmtán þúsund. Tónlistin blómstrar.

Ég get haldið áfram. Heilbrigðisþjónusta á Íslandi er að mörgu leyti til fyrirmyndar þrátt fyrir sáran fjárskort. Þetta sést meðal annars á því, að í aðeins sex löndum heimsins lifir mannfólkið lengur en á Íslandi (81,5 ár hér að meðaltali, konur 83,3 ár, karlar 79,7). Þessi sex langlífislönd eru örríkin Liechtenstein og San Marínó, sem á heimsmetið (83 ár), og auk þeirra Hong Kong, Ísrael, Japan og Sviss (heimild: Alþjóðabankinn). Margir foreldrar eru fyrir hönd barna sinna hæstánægðir með leikskólana og grunnskólana þrátt fyrir lág kennaralaun, og þannig mætti lengi telja. Sonarsonur minn kom uppveðraður heim úr skólanum, hann var sex eða sjö ára, og vildi vita meira um Fjalla-Eyvind og Höllu. Hann er að læra á barítónhorn. Það er íslenzk menning.

(Ég var beðinn um 400 orð um íslenzka menningu handa tímariti fyrir útlendinga, sem kemur út á nýju ári, og niðurstaðan varð þessi.)