Landsframleiðsla 2001-2018 (magnvísitölur, 2005 = 100)
Hér sjáum við þróun þjóðarbúskapar Íslendinga frá 1901 til 2018. Framleiðslan (bláa kúrfan) er verg landsframleiðsla, þó þannig að hér hefur tveim magnvísitölum verið splæst saman: fyrst þjóðarframleiðslu 1901-1945 og síðan landsframleiðslu 1945-2018. Meðalvöxtur framleiðslunnar var 3,8% á ári þessi 118 ár. Það þýðir tæpa áttatíuföldun framleiðslunnar á tímabilinu og tæpa átjánföldun framleiðslu á mann. Framleiðslugetan (rauða kúrfan) er framleiðslan eins og hún hefði verið við fulla nýtingu allra framleiðsluþátta. Takið eftir því að heimskreppan á fjórða áratug 20. aldar og heimsstyrjöldin nokkru síðar lýsa sér ekki í miklu misræmi milli framleiðslu og framleiðslugetu. Á hinn bóginn sést greinilega að verðbólga 1970-1990 kýldi framleiðsluna upp fyrir framleiðslugetuna árin 1970-1990 og síðan niður aftur. Hrunið 2008 kýldi framleiðsluna aftur niður fyrir framleiðslugetuna og hefur framleiðslan haldizt undir framleiðslugetu síðan þá þótt vöxtur framleiðslunnar hafi síðustu ár náð sér á strik og verið svipaður og áður. Þetta er vísbending um langvarandi efnahagstjón af völdum hrunsins.
Heimild: Hagstofa Íslands.