Ný stjórnarskrá þokast nær
Meiri hluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis hefur lagt fyrir þingið tillögu til þingsályktunar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur Stjórnlagaráðs að frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár og tiltekin álitaefni þeim tengd. Þingályktunartillagan hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að tillögur að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga sem stjórnlagaráð afhenti forseta Alþingis 29. júlí 2011 og álitaefni þeim tengd skuli borin upp í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu …
Þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram samhliða forsetakosningum 30. júní 2012.
Eftirfarandi spurningar verði bornar upp í þjóðaratkvæðagreiðslunni:
1. Vilt þú að tillaga stjórnlagaráðs verði lögð fram sem frumvarp að nýrri stjórnarskrá eftir að hún hefur verið yfirfarin með tilliti til laga og alþjóðasamninga?
Merktu í reitinn fyrir framan þann valmöguleika sem þú kýst.
* Já, ég vil að tillaga stjórnlagaráðs verði lögð fram sem frumvarp að nýrri stjórnarskrá eftir að hún hefur verið yfirfarin með tilliti til laga og alþjóðasamninga.
* Nei, ég vil ekki að tillaga stjórnlagaráðs verði lögð fram sem frumvarp að nýrri stjórnarskrá.
* Tek ekki afstöðu.
2. Einnig ertu beðin(n) um að svara nokkrum efnislegum spurningum um nýja stjórnarskrá.
Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá Íslands verði | Já | Nei | Tek ekki afstöðu |
1. náttúruauðlindir lýstar þjóðareign? | |||
2. ákvæði um þjóðkirkju Íslendinga óbreytt frá því sem nú er ? | |||
3. persónukjör í kosningum til Alþingis heimilað í meira mæli en nú er? | |||
4. ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt? | |||
5. ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningabærra manna geti krafist
þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu? |
* 10% |
Sex spurningar, sex svör
Ég greiddi í Stjórnlagaráði atkvæði með frumvarpi ráðsins í heild eins og allir aðrir ráðsfulltrúar og einnig með öllum einstökum greinum frumvarpsins lið fyrir lið, og ég ætla að ráðstafa atkvæði mínu í þjóðaratkvæðagreiðslunni 30. júní í samræmi við það. Ég ætla því efst á kjörseðlinum að merkja við „Já, ég vil að tillaga stjórnlagaráðs verði lögð fram sem frumvarp að nýrri stjórnarskrá …“
Spurningunum fimm á neðri hluta seðilsins ætla ég að svara svo.
Vilt þú, að í nýrri stjórnarskrá verði náttúruauðlindir lýstar þjóðareign? Já, þetta er eitt mikilvægasta ákvæði frumvarpsins og svarar kalli þjóðfundarins 2010 og stefnu allra stjórnmálaflokka á Alþingi.
Vilt þú, að ákvæði um þjóðkirkju Íslendinga verði óbreytt frá því sem nú er? Nei, ég tel ákvæðið í frumvarpi Stjórnlagaráðs betra. Óbreytt skipan myndi þó ekki raska frumvarpinu að öðru leyti.
Vilt þú, að persónukjör í kosningum til Alþingis verði heimilað í meira mæli en nú er? Já, þetta er snar þáttur í kosningaákvæðinu í frumvarpi Stjórnlagaráðs og svarar kalli þjóðfundarins 2010.
Vilt þú, að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda alls staðar að af landinu vegi jafnt? Já, þetta er ásamt auðlindaákvæðinu eitt mikilvægasta ákvæði frumvarpsins.
Vilt þú, að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningabærra manna geti krafizt þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu? Já, og mér finnst, að hlutfallið eigi að vera 10% eins og frumvarp Stjórnlagaráðs kveður á um. Hærra hlutfall, 15% eða 20%, myndi leiða til færri þjóðaratkvæðagreiðslna eða engra fyrir frumkvæði kjósenda, ef marka má reynsluna utan úr heimi, en það myndi þó ekki raska frumvarpi Stjórnlagaráðs að öðru leyti.