• Sönglög

21. jún, 2024

Ekki land mitt

Lag mitt við kvæði Önnu Akhmatovu


Lag við kvæði eftir Önnu Akhamatovu í þýðingu Regínu Stefnisdóttur.

Bjarni Thor Kristinsson og Ástríður Alda Sigurðardóttir frumfluttu lagið á tónleikum í Hörpu 3. september 2023.

Ekki land mitt

Ekki land mitt, en
eilíft í minni mínu,
öldur sjávar þess
kaldar og ferskar.

Sandur á botninum hvítari en kalk,
loftið teygað sem vín,
síðsólargeislar slá roða
á greinar furutrjánna.

Sólsetur í óræðum öldum:
Ég fæ ekki séð hvort dagurinn
er á enda eða veröldin, eða hvort
leynd allra leynda hvílir innra með mér á ný.

Hér eru nóturnar: Ekki land mitt (Sibelius, pdf)