Útgjöld til varnarmála 1989-1999
Mynd 81. Myndin sýnir útgjöld til varnarmála sem hlutfall af landsframleiðslu. Hér breytist röð landanna lítils háttar frá mynd 80, enda er hlutfall ríkisútgjalda í landsframleiðslu ólíkt eftir löndum. Takið eftir því, að Noregur og Svíþjóð eru nú fyrir ofan miðbik myndarinnar, enda eru þetta stór lönd og strjálbýl. Munurinn á myndunum stafar einnig af því, að ríkisútgjöld í Noregi og Svíþjóð eru mikil miðað við landsframleiðslu, svo að hlutfall varnarmálaútgjalda af ríkisútgjöldum er þá lægra fyrir vikið, svo sem sést á fyrstu myndinni. Því má segja, að myndin að ofan veiti betri innsýn í umfang varnarmálaútgjalda í efnahagslífinu en mynd 80. Takið einnig eftir því, að eyríkin skipa sér áfram í neðstu sætin á myndinni að ofan. Sjá einnig Varnir og fjármál.