Uppskeruhátíð hagfræðinga
Höfundur hagvaxtarfræðinnar, Robert M. Solow, sem hlaut verðlaunin 1987, var doktorsleiðbeinandi Halls á MIT og sat síðar í doktorsnefnd Woodfords sem aukaleiðbeinandi. Hall er fimmti doktorsnemandi Solows sem vinnur til Nóbelsverðlauna. Það hlýtur að vera heimsmet. …
Ef Solow ber gullið fyrir sína fimm Nóbelsnemendur, þá á Wassily Leontief silfrið. Hann … hafði verið doktorsleiðbeinandi Solows og fjögurra annarra verðandi Nóbelsverðlaunahafa. … Við lok doktorsvarnar Samuelsons í Harvard–háskóla 1941 hallaði Joseph Schumpeter, einn þriggja í doktorsnefndinni, sér að formanni nefndarinnar og spurði hálfum hljóðum: Stóðumst við prófið, Wassily?