• Sönglög

2. des, 2017

Vertu hjá mér

Lag við kvæði eftir Kristján Hreinsson


Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Snorri Sigfús Birgisson píanó frumfluttu lagið sem aukalag við Sextán söngva í Hannesarholti 25. nóvember 2017.

Vertu hjá mér (einsöngur og píanó): PDF, Sibelius

Samstarfsaðilar

Hallveig Rúnarsdóttir

sópran

Hallveig Rúnarsdóttir hefur sungið mörg óperuhlutverk á sviði, m.a. í Íslensku óperunni, og einnig erlendis og komið fram sem einsöngvari með hljómsveitum, m.a. oft með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Undanfarin ár hefur hún einnig lagt rækt við ljóðasöng og haldið tónleika með þýzkum, frönskum og norrænum sönglögum. Á geisladiskinum Í ást sólar flytur hún íslenzk sönglög ásamt Árna Heimi Ingólfssyni piánóleikara. Hún hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2013 sem söngkona ársins fyrir hlutverk Michaelu í Carmen eftir Bizet í Íslensku óperunni.

Snorri Sigfús Birgisson

píanóleikari

Snorri Sigfús Birgisson stendur í fremstu röð íslenzkra píanóleikara og er jafnframt mikilvirkt tónskáld. Eftir hann liggur fjöldi tónverka: einleiksverk, kammertónlist, raftónlist, kórtónlist, sinfónísk verk og sönglög. Tónlist hans er að finna á fjölmörgum geisladiskum og hljómplötum. Hann gekk frá lagaflokkinum í hendur söngvaranna tveggja.