• Sönglög

2. maí, 2025

Til Helgu Bachmann

Vínarvals við kvæði eftir Þorstein Gylfason


Við sátum, frú Karitas og ég, og sötruðum svalan fordrykk á Café Schwarzenberg, elzta starfandi kaffihúsinu og barnum á Hringnum í Vín, í samfelldum rekstri síðan 1861 — og hvað finn ég þá í símanum mínum nema þetta laufléttúðuga sextugsafmæliskvæði sem Þorsteinn Gylfason bróðir minn orti á þessum sama bar handa Helgu Bachmann, leikkonunni miklu, og sendi henni, væntanlega með símskeyti, fyrir röskum aldarþriðjungi. Lagið varð til einnig þarna á Café Schwarzenberg; kvæðið syngur sig sjálft.

Hér eru kvæðið og lagið (Sibelius, pdf, mp3).