Þrír bassar og Anna Akhmatova
Hér eru þrjú sönglög mín við kvæði rússnesku skáldkonunnar Önnu Akhmatovu, eins merkasta skálds Rússa um sína daga. Lögin eru tileinkuð þrem söngvurum, Bjarna Thor Kristinssyni, Kristni Sigmundssyni og Viðari Gunnarssyn, sem munu ásamt Helgu Bryndísi Magnúsdóttur flytja lögin í væntanlegri sjónvarpsmynd eftir Jón Egil Bergþórsson.
Anna Akhmatova fæddist í Ódessu í Úkraínu. Hún sætti þöggun, ritskoðun og ofsóknum. Fyrsti eiginmaður hennar var myrtur, einkasonur hennar sat í fangelsi í tíu ár, og þriðji bóndinn dó í fangabúðum. En Stalín var sagður óttast Önnu Akhmatovu því hún gat fyllt hvaða sal sem var þegar hún auglýsti ljóðalestur. Regína Stefnisdóttir þýddi kvæðin þrjú á íslenzku. Bjarni Thor Kristinsson og Ástríður Alda Sigurðardóttir frumfluttu Ekki land mitt á tónleikum í Hörpu 3. september 2023. Þið heyrið kannski stutta tilvitnun þar í Boris Godunov. Hin lögin tvö, Lokaskálin og Þrumur muntu heyra, bíða frumflutnings í ofan nefndri kvikmynd.
Anna Akhmatova