Sextán söngvar fyrir sópran og tenór
Tónleikar í Hannesarholti
Sextán söngvar fyrir sópran og tenór eru sönglagaflokkur eftir Þorvald Gylfason prófessor við kvæði eftir Kristján Hreinsson skáld og heimspeking. Ljóðin og lögin fjalla um söknuð, sorg og gleði, viljann og vonina, ástina, lífið og listina.
Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Elmar Gilbertsson tenór og Snorri Sigfús Birgisson píanó frumfluttu ljóðaflokkinn í Hannesarholti í Reykjavík 25. nóvember 2017. Skáldið flutti stuttar skýringar á undan hverju lagi og ljóði sem var varpað á vegg á bak við sviðið. Þau fluttu síðari hluta flokksins, Sumarferðina, í Hörpu 27. nóvember 2022.
EFNISSKRÁ
- Lágstemmdar línur
- Þegar ljóðið lifir
- Móðurminning
- Við glugga um nótt
- Ekkert að óttast
- Minn eilífi draumur
- Lífsblóm
- Leiðin liggur heim
- Fagur engill fylgir þér
- Fögur mynd
- Tónlist hjartans
- Vilji vindsins
- Við gröfina þína
- Vonarglæta
- Sagan
- Ljúfur leikur
Aukalög - Vertu hjá mér
- Bros