RÚV
3. júl, 2026

Þjóðaratkvæðagreiðslan um framhald samningaviðræðna við ESB

Við ætlum að snúa okkur að þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildaviðræður Íslands að Evrópusambandinu sem verður 29. ágúst. Þorvaldur Gylfason doktor í hagfræði var gestur okkar. Hann hefur lengi verið já-megin, skrifaði sína fyrstu grein um mikilvægi þess að Íslendingar myndu ganga í Evrópusambandið árið 1987 og hefur verið óþreytandi síðan að skrifa og fjalla um þetta málefni. Hann skrifaði nýlega grein undir yfirskrifinni Stöndum saman þar sem hann hvetur landsmenn til að líta á þjóðarhag fremur en svæðisbunda hagsmuni þegar það kemur að atkvæðagreiðslunni. Við fórum með honum yfir hvers vegna hann ætlar að segja já í ágúst. Í næstu viku fáum við svo að heyra í fólki sem ætlar að segja nei.