28. nóv, 2006

Gamalt fólk 65 ára og eldra 2001

Mynd 92. Mynd sýnir sama hlut og myndin næst á undan af öðrum sjónarhóli: Kórea og Írland eru einu OECD-löndin, þar sem gamalt fólk er tiltölulega færra en hér heima; tölurnar eru frá 2001. Við erum, ásamt Írum, yngsta þjóð Evrópu. Gamalt fólk er tiltölulega flest í Grikklandi og á Ítalíu. Sjá meira um málið í Menntun, aldur og heilbrigði.