• Tónleikar

9. sep, 2026

Útgáfutónleikar

Tónleikar í Hörpu


Sígildir sunnu­dagar: Sönglög eftir Gylfa Þ. Gíslason

Harpa 17. janúar 2027

Miðar á tix

Andri Björn Róbertsson bassabarítón, Dísella Lárusdóttir sópran, Elmar Gilbertsson tenór, Hildigunnur Einarsdóttir messósópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanó flytja úrval laga af tveim nýjum diskum sem geyma nær öll sönglög Gylfa, 20 lög sem margir þekkja, sum þjóðkunn, og 11 önnur lög sem hafa ekki heyrzt áður. Diskarnir verða á boðstólum. Tónleikarnir verða fagurlega myndskreyttir. Þorvaldur Gylfason flytur stuttar skýringar.

kapa_framhlid kroppuð

 

Samstarfsaðilar

Andri Björn Róbertsson

bassabarítón

Andri Björn Róbertsson nam við Söngskólann í Reykjavík, Royal Academy of Music og National Opera Studio í London. Hann var meðlimur í alþjóðlegu óperustúdíói Opernhaus Zürich og áður Harewood-listamaður hjá Ensku þjóðaróperunni (ENO). Meðal nýlegra verkefna hans eru 9. sinfónía Beethovens með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Lessons in Love and Violence eftir George Benjamin með Sinfóníuhljómsveit Lundúna (heimsfrumsýning í Covent Garden 2018). Sem ljóðasöngvari hefur Andri Björn komið fram á Oxford International Song Festival, í Íslensku óperunni, Festival d’Aix-en-Provence og Opéra de Lille, auk Hörpu og Salarins í Kópavogi. Fyrsti einsöngsgeisla-diskur hans, Thorsteinson & Schumann, með píanóleikaranum Ástríði Öldu Sigurðardóttur, kom út hjá Fuga Libera 2021. Andri Björn var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem Söngvari ársins 2022 og 2023.

Dísella Lárusdóttir

sópran

Dísella Lárusdóttir hefur sungið í Metropolitan Óperunni í New York síðan 2013. Söngur hennar hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda, meðal annars í New York Times. Fjórar uppsetningar með henni á Met hafa verið sýndar í benni útsendingu í kvikmyndahúsum um allan heim. Dísella hefur einnig sungið í evrópskum óperuhúsum, fyrst sem Lulu í Róm 2017. Hún er einnig eftirsótt á tónleikapöllum. Hún söng í Merkin Concert Hall í New York 2008. Hún hefur einnig komið fram í Carnegie Hall í New York, Kimmel Center for the Performing Arts í Fíladelfíu og Walt Disney Concert Hall í Los Angeles. Dísella hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2017 og 2019 sem söngvari ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar og Grammy-verðlaun fyrir beztu óperuupptökuna 2022. Einsöngsgeisladiskar hennar eru Solo Noi (2007) and dóttir (2019). Dísella kennir söng í Listaháskóla Íslands og Söngskólanum í Reykjavík.

Elmar Gilbertsson

tenór

Elmar Gilbertsson hóf tónlistarferil sinn sem kórsöngvari, brautskráðist frá Söngskóla Sigurðar Demetz 2007 og lauk síðan meistaranámi 2009 við Konunglega tónlistarháskólann í Haag og Tónlistarháskólann í Amsterdam. Kennarar hans þar voru Jón Þorsteinsson og Peter Nilson. Elmar hefur sungið mörg óperuhlutverk á sviði, einkum í Hollandi og Belgíu og einnig í Englandi, Frakklandi og Þýzkalandi, þar sem hann starfaði um skeið við óperuna í Stuttgart, auk Íslands. Hann frumflutti og hljóðritaði ásamt Hallveigu Rúnarsdóttur og Snorra Sigfúsi Birgissyni Íslensku söngvabókina, 39 lög eftir Þorvald Gylfason við kvæði Kristjáns Hreinssonar (Polarfonia Classics, 2023). Elmar hlaut Grímuverðlaunin og einnig Íslensku tónlistarverðlaunin 2014 sem söngvari ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar og hlaut báðar viðurkenningarnar aftur 2016.

Hildigunnur Einarsdóttir

messósópran

Hildigunnur Einarsdóttir lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík 2010 undir hand-leiðslu Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur og Signýjar Sæmundsdóttur og stundaði framhaldsnám í Þýzkalandi og hjá Jóni Þorsteinssyni í Hollandi. Hildigunnur lauk einnig B.A. prófi í skapandi tónlistarmiðlun frá Listaháskóla Íslands. Hún stjórnar kórum, kennir söng og syngur í Óperunni og Cantoque Ensemble. Hildigunnur hefur frumflutt fjölda verka íslenzkra tónskálda. Ásamt Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Hrönn Þráinsdóttur flutti hún meðal annars Söngva um svífandi fugla eftir Þorvald Gylfason við kvæði Kristjáns Hreinssonar í samnefndri kvikmynd 2026. Árið 2025 söng hún dúett með sópransöngkonunni og hljómsveitarstjóranum Barböru Hannigan á sinfóníutónleikum og kom fram í Hörpu ásamt sellóleikaranum Yo-Yo Ma. Hildigunnur hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2023 fyrir söng ársins í flokknum sígild og samtímatónlist.

Helga Bryndís Magnúsdóttir

píanó

Helga Bryndís Magnúsdóttir lauk einleikara- og kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1987 þar sem aðalkennari hennar var Jónas Ingimundarson. Hún stundaði síðan framhaldsnám við Konservatoríið í Vínarborg hjá Leonid Brumberg og Sibeliusarakademíuna í Helsinki hjá Liisu Pohjola og Tuiju Hakkila. Hún hefur leikið einleik á fjölmörgum tónleikum í Hörpu, Salnum og um allt land, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, haldið fjölda tónleika með söngvurum og hljóðfæraleikurum, hljóðritað marga geisladiska með öðrum og einnig gefið út disk með einleiksverkum eftir Robert Schumann, Carnaval og Fantasiu. Hún hefur einnig gert upptökur fyrir sjónvarp og útvarp, bæði ein og með öðrum, nú síðast í verðlaunakvikmyndinni Þrír bassar og Anna Akhmatova ásamt Bjarna Thor Kristinssyni, Kristni Sigmundssyni og Viðari Gunnarssyni.