visir.is
4. ágú, 2026

Ísland og ESB: Horft af brúnni

Ísland var meðal stofnríkja Atlantshafsbandalagsins (NATO) og bjó við sæmilega öruggar varnir eftir heimsstyrjöldina síðari, jafnvel eftir að Bandaríkin drógu herlið sitt einhliða frá Íslandi 2006. Frá 2022 hefur þó árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu, ásamt dvínandi skuldbindingu Bandaríkjanna gagnvart NATO, gerbreytt öryggisumhverfi Íslands. Til að efla öryggi sitt og lýðræði kunna Íslendingar því að telja nauðsynlegt og jafnframt æskilegt — einnig af efnahagsástæðum — að ganga í Evrópusambandið (ESB).

Birtist einnig á akureyri.net 4. ágúst 2026.